13 December 2005

Jólahlaðborðið í danska fyrirtækinu :D

Eins og sjá má er ekki hægt að gera öllum til hæfis þegar Jólahlaðborð er annars vegar, Það þarf að vera pláss fyrir alla.

2. desember
Til allra starfsmanna:
Það er mér mikil ánægja að tilkynna að jólahlaðborð fyrirtækisins,julefesten, verður haldin á Steikhúsi Argentína þann 20 desember.Jólaskreytingar verða komnar á sinn stað og lítil hljómsveit mun spilavinalega og velþekkta jólasöngva. Aðstoðarforstjórinn kemur og leikurjólasveininn og hann ætlar líka að kveikja á jólatrénu. Þið megið koma meðjólagjafir en þær mega ekki kosta meira en 200 krónur.Ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar friðar á aðventu.
Tina Johansenfulltrúi í starfsmannahaldi---

3. desember
Til allra starfsmanna:
Það var ekki meiningin með tilkynningunni í gær að móðga tyrkneskuvinnufélagana okkar. Við vitum að helgidagarnir þeirra eru ekki alvegsamstæðir okkar. Þess vegna köllum við jólahlaðborðið framvegisárslokaveislu. Af þessum ástæðum verður ekkert jólatré og ekkijólasöngvar. Ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar góðra stunda.
Tina Johansenfulltrúi í starfsmannahaldi---

7.desember
Til allra starfsmanna:
Félagi í Anonyme Alkoholikere, AA, sem ekki vill láta nafns síns getið afeðlilegum ástæðum, krefst þess að á árslokaveislunni verði þurrt borð. Meðgleði get ég sagt að það verður orðið við þessum óskum en vil um leiðbenda á að þurrkinn eftir veisluna get ég ekki ábyrgst. Þar að auki verðaekki gefnar jólagjafir því verkalýðsfélagið hefur mótmælt og telur 200krónur allt of háa upphæð í jólagjafir.
Tina Johansenfulltrúi í starfsmannahaldi.---

9. desember
Til allra starfsmanna
Mér heppnaðist að fá borð langt frá hlaðborðinu fyrir félaga okkar úrmegrunarklúbbi fyrirtækisins. Svo fékk ég líka borð fyrir alla ólétta rétthjá salernisdyrunum. Hommar sitja hlið við hlið. Lesbiur þurfa ekki aðsitja við hliðina á hommunum, þær fá sér borð. Að sjálfsögðu fá hommar oglesbiur blómaskreytingu á borðin sín.ERUÐ ÞIÐ NÚ ÁNÆGÐ...EÐA HVAÐ?
Tina Johansenfulltrúi á geðveikradeildinni í starfsmannahaldi---

10. desember
Til allra starfsmanna
Að sjálfsögðu tökum við tillit til þeirra sem ekki reykja. Teppi verðurnotað til að skipta veislusalnum í tvær deildir. Möguleiki á að hafa reyklaust fólk í tjaldi fyrir utan veitingahúsið.
Tina Johansenfulltrúi í starfsmannahaldi fyrir undirokaða---

14. desember
Til allra starfsmanna
Grænmetisætur! Ég beið nú bara eftir að heyra frá ykkur. Mér er svoinnilega, alveg skít sama hvort veislan passar fyrir ykkur eða ekki. Viðförum á Steikhúsið. Mín vegna getið þið farið til Mánans 20.desember tilað sitja sem lengs frá dauða-grillinu sem þið mögulega getið. Njótið, forhelvede, saladbarsins og étið ykkar hráu tómata. Og munið að tómatar hafalíka tilfinningar. Þeir æpa þegar maður sker í þá, ég hef sjálf heyrt það.Jæja svín, þarna fenguð þið á baukinn!Ég óska öllum hvínandi góðra jóla, drekkið ykkur drullu-full, svo þiðfarið í kóma!
Kveðja frá "Bitchen" á þriðju hæðinni.---

Til allra starfsmanna
Ég er viss um að ég tala fyrir hönd okkar allra, þegar ég óska TineJohansen góðs bata. Það verður metið við ykkur ef þið sendið henni kortmeð góðum óskum á Geðdeildina. Stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið að þaðverður ekki nein árslokaveisla eða jólahlaðborð. Þið megið taka ykkur fríallan daginn þann 20. desember á fyrirtækisins kostnað.Gleðileg jól!
Frederik Lindstrømstarfsmannastjóri

2 comments:

Anonymous said...

haha já þetta er alger snilld ;O)

Anonymous said...

Takk fyrir þetta.
Þess vegna á aldrei að sjá um hjólahlaðborð....
knús ;0)