Hver dagur er erfiðari núna. Ég mun gera þetta strax núna eftir helgi. Hvorki ég og sérstaklega ekki Katla höfum það gott núna. Ég get ekki hætt að gráta og Katla mín er líka í uppnámi. Hún veit hvað er að gerast, hún finnur það á mér. Hún á betra skilið en að eyða síðustu dögunum með grátandi mér. Versta er að ég vil ekki gera þetta. Finnst það vera að rífa úr mér hjartað en veit það þetta er hið eina rétta. Katla mín er það mikilvægasta. Hún á skilið aðeins hið besta og í hundahimnaríki fær hún það allt. Hún mun samt alltaf vera í hjarta mínu nú og alltaf. Ég hugsa að ég muni ekki skrifa aftur fyrr en að allt er um yfirstaðið. Ég ætla að reyna að vera Kötlu minni góð þangað til.
Ykkur finnst kannski óviðeigandi að ég skuli tala svona á netinu um mín hjartans mál en ég verð að venta og þið sem þekkið Kötlu, hélt að ykkur langaði að vita um hana. Ef ég særi einhverja blygðunarkennd þá biðst ég afsökunar.
29 October 2005
28 October 2005
Katlan mín...
Ég fékk sorgarfréttir í gær. Félagsstofnun stúdenta sendu mér bréf þar sem mér var hótað að vera fleygt á götuna ef ég kem Kötlu minni ekki fyrir einhversstaðar annarsstaðar. Svo virðist sem einhver anal retentive fábjáni sem hefur aldrei átt gæludýr, klagaði mig. Og þar sem Katlan mín er orðin gömul og veik er bara einn staður sem hún getur farið á. Ég grét og grét í gær. Hélt að ég kæmist ekki í gegnum daginn. Mér þykir svo vænt um stelpuna mína og á eftir að sakna hennar sárt. Mér leið eins og það væri að rífa úr mér hjartað í gær þegar ég uppgötvaði að hún þyrfti að sofna innan tveggja vikna. Ekki sanngjarnt. Allir sem hafa átt gæludýr vita um hvað ég er að tala. Og hún er líka svo yndisleg og góð og falleg og kjánaleg og meiriháttar í alla staði. Ég mun njóta þess að vera með henni þessa síðustu daga. Vera góð við hana og leyfa henni að vera góðri við mig. Ætli að þetta sé ekki bara til að ég dragi ekki of lengi að leyfa henni að sofna. Hún er jú veik og ég vil ekki að hún þjáist. Æ þetta er bara svo erfitt. Hún fyllti upp í tómarúm hjá mér, ég fékk hana nokkrum mánuðum eftir mikinn missi og þess vegna hefur hún sérstakan stað í hjarta mínu. Enda var ég algerlega ónýt í gær, gat ekki hætt að gráta, endalaust streymdu tárin.
Dagurinn í dag er aðeins betri. Ég virðist hafa grátið úr mér mestu sorgina í gær. Er aðeins sáttari í dag ( ef svo má kalla því maður verður aldrei sáttur við svona ) og hef ákveðið að sjá fegurðina í stelpunni minni á meðan ég hef hana hérna. Ég er gjörsamlega búin á þvi eftir gærdaginn, mér er illt alstaðar í andlitinu þó sérstaklega í augunum. Það eins og ég sé með harðsperrur í þeim, öll bólgin og sæt. Eins gott að engin sjái mig núna. Nema Katlan mín, henni er alveg sama um hvernig ég lít út, bara að ég gefi henni að borða... lol. Nei nei, hún elskar mig eins og ég er. Litla stelpan mín sem er orðin gömul geit, grá og guggin. Við áttum margar góðar stundir saman ég og hún og ég ætla að sjá til þess að þær verða fleiri næstu tvær vikurnar......
25 October 2005
Blues...
Ég er mjög blá í dag. Ég veit ekki afhverju, sól skín í heiði, veðrið er frábært og mér gengur svo til allt í haginn. Langar helst að gráta úr mér augun og fara svo að sofa og vakna ekki aftur fyrr en bláminn er farinn. Úff hvað ég þoli ekki að vera döpur, ég hef ekkert að vera döpur yfir þannig séð. Svo er samviskubitið út af ömmu með mig lifandi að fara, er ekki búin að fara til hennar í rúma viku and it is killing me. Hef svo sem löggilda ástæðu, skólinn er að kaffæra mig en samt ... það tekur ekki langan tíma að kíkja til gömlu konunnar... Æ, er eitthvað hálf vonlaus í dag. Ekkert gaman að tala við mig núna. Ætla að blogga aftur þegar ég er komin í betra skap. þar til þá...
24 October 2005
Jæja, ný vinnuvika að byrja með tilheyrandi látum. Helgin var ansi stutt hjá mér út af prófinu á laugardaginn, sem bæðevei var svínslegt og erfitt og jafnvel svínslega erfitt..... Ég var totally and utterly búin á því þegar prófinu lauk enda hafði átt frekar erfiða nótt fyrir það, mamma þú veist hvað ég á við tí hí hí... nei nei bara að stríða þér. Og núna eru framundan verkefnaskil, verklegir tímar, mikill lestur og annað próf og allt þetta fyrir miðvikudag!!! Eins gott fyrir mig að halda vel á spöðunum. Versta er að ég er ennþá pínu slöpp, líkaminn ekki ennþá búin að jafna sig eftir veikindin og ég þarf að hvíla mig alltaf reglulega.
Fór út að dansa á laugardagskvöldið. MIKIÐ af fólki í bænum út af Iceland Airwaves. Það var fínt nema hvað minns gat dansað stutt, held að ég hafi enst í 2 klst. Ég var vön að vera á útopnu í fleiri fleiri tíma. Náttúrulega ekki gott fyrir lungun að vera í reyk og rusli eftir síðustu vikur. Úff !! Var líka þreytt í gær og gerði ekki mikið. Hell, ég er ennþá þreytt en það er margt og mikið framundan þannig að ég verð að taka daginn snemma. Ætla líka að reyna að koma mér í poweryoga í kvöld ef ég verð ennþá standandi.
Oh well, Verð að fara að koma mér að verki. Langur og strangur dagur framundan...
Hún Katla mín horfir á mig bænaraugum um að fá að fara út að pissa og allir sem hafa hitt Kötlu vita að það er vonlaust að reyna að standast þessi augu. Mikið ósköp getur þessi stelpa verið aumingjaleg þegar hún vill ná einhverju fram... ti hi hi....
21 October 2005
Katla og Neró svefnpúkar...
Heldur þú að ég hafi ekki sofið hjá tveimur labrador hundum í nótt? Í rúminu mínu sem er nú ekkert ýkja stórt. Annar þeirra, hundurinn hennar mömmu, virtist halda að það væri sjálfsögð réttindi hans að breiða veeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeel úr sér og lá hann með alla skanka úti nærri alla nóttina. Hún Katla mín var nú hæverskari og lá í kurli við hliðina á mér. Tveir stórir labrador hundar og ég í 120 cm rúmi, you do the math... það var sko heldur ekkert kalt að hafa tvo lifandi hitapoka í rúminu undir sænginni. Ég skil ekki hvernig þau gátu verið undir sænginni með feld og allt en ok. Þeim leið vel og það er fyrir öllu. Ég var hinsvegar aðeins í meiri kremju en fannst samt voða notó að hafa þau þarna hjá mér. Mamma lá uppi í sófa og hraut hástöfum í kór við hundana þannig að ég fékk nætursöng. Allt í góðu. Jæja þá er það að fara að læra fyrir prófið á morgun.
Leiter alligeiter
ps. helduru að ég hafi ekki fundið mynd sem er nauðalík Neró og Kötlu minni :D
Leiter alligeiter
ps. helduru að ég hafi ekki fundið mynd sem er nauðalík Neró og Kötlu minni :D
19 October 2005
Ef þú brosir ekki yfir þessu...
Þið gjörsamlega veeeeeeeeeeeeeerðið að lesa þetta, þekki þessa konu ekki neitt en ómægod hvað mér finnst hún fyndin, gjörsamlega búin að veina yfir henni svona rétt fyrir svefninn. Takk elsku Karen fyrir að blogga tengli á þessa konu, ég fer að sofa með bros á vör. :D
kíktu á hana
Gleði Gleði Gleði í annarri útgáfu...
Læra læra læra
læra líf mitt er
sem að skólabókin
gefið hefur mér
ég virðist eiga
ekkert líf
því að það er
læra læra læra alla tíð
stundum vildi ég að það væri hægt að beintengja úr bók og beint inn í minni....
læra líf mitt er
sem að skólabókin
gefið hefur mér
ég virðist eiga
ekkert líf
því að það er
læra læra læra alla tíð
stundum vildi ég að það væri hægt að beintengja úr bók og beint inn í minni....
18 October 2005
SÚREFNI, YNDISLEGA SÚREFNI....
Ég get andað..... þvílíkur léttir að geta andað.... yndislegt að geta andað... Það kom í ljós að astminn var að valda mér erfiðleikum og ég er núna komin á sterapúst þannig að hóstinn hefur minnkað mikið... Ég er svooooooooooooooo glöð.. eins og ég hef áður sagt... Maður kann sko að meta hluti þegar maður áttar sig á að þeir eru ekki endilega sjálfgefnir... Nauðsynlegt að fá smá reality check öðru hvoru... hefði mátt vera aðeins styttra í þetta skiptið, er orðin þreytt á þessu gelti og líkaminn líka. Það er víst ansi erfitt fyrir líkamann að fá ekki að anda, ti hi hi... En nú er sko onward and upwards, ekkert elsku mamma neitt. þá er það hvítlaukshylki, sólhattur, c-vitamín, fjölvítamín, lýsi, flensusprauta og hvað annað sem ég get fundið fyrirbyggjandi.
óvör end át
óvör end át
17 October 2005
að hósta eða ekki hósta, það er spurningin,,,
Bú hú aumingja ég..........
aaaaaaaaaaaaaaarg, helduru að hóstinn haldi fyrir mér vöku? Ég er búin að vera hálf- eða algeltandi núna í um 5 vikur. Verð að viðurkenna að ég er orðin ansi þreytt á þessu. Ætla líka til doksa á eftir og vita hvað í $#%&$&#"%! er í gangi. Getur ekki verið eðlilegt. Er samt búin að fara á 7 daga pensílin kúr þarna einhverja vikuna. Jæks !!!! Þetta er ekki gera skólastarfinu mínu neitt voða gott. Erfitt að einbeita sér þegar maður er veikur, eins og heilinn í manni breytist yfir í froðu og mauk sem kallast HOR !!!!!!! Ég drekk hóstasaft af miklum ákafa á kvöldin svo að ég geti sofið eitthvað, ætli að maður sé orðin hóstasaftisti og þurfi að fara í meðferð eftir öll þessi ósköp ?? Nei, ég bara spyr...
Annars var helgin nokkuð róleg hjá mér..... JAH... nema föstudagskvöldið. Þá komum við fjölskyldan sörpræs til Ásbjörns bróður sem var tvítugur síðustu viku (TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ AFTUR ÁSBJÖRN) og það var spilar partýspilið fram á rauða, mikið gaman mikið grín. Svo tók ég ömmu mína til mín á laugardag, yndislegt að hafa hana hjá mér í smá stund. Ég HÓSTAÐI, las nýjustu bók Iris Johannsen, bæðevei skemmtilegur höfundur, svaf og HÓSTAÐI. Jebb svona var mín helgi...... vonandi var þín góð.
Jæja, ætla að reyna að annað hvort að sofna aftur í smá stund áður en að hringi á doksa eða reyna að nýta tímann og lesa fyrir próf sem ég á að fara í á laugardaginn. Ég held faaaaaaaaaaaast í þá von að ég verði orðin það góð þá að ég sé hætt að hósta, annars verð ég myrt margvegis í þessu blessaða prófi af samnemendum mínum. Fátt eins truflandi og manneskja sem virðist vera að hósta úr sér lungu og lifur í prófi, maður býst alltaf við því að þurfa að hoppa upp og gefa mouth to mouth og þar með er einbeitingin farin út í veður og vind. Ekki vil ég gera þeim það, ætli að þetta próf sé ekki nógu erfitt fyrir því. oh, well !!
Alda Lilja kjölturrakki

13 October 2005
aaaaaaaaaaaaaaaaarg.... no good...
jæks... ég held að ég verði að játa mig sigraða,,,,, í kvöld alla vega... þetta bloggsíðudótarí er aðeins flóknara en það virðist vera................... feeeeeeeeeeeeeeeeel endalaust stupid, þannig að ég er sem sagt að öskra eftir hjálp...
HELP I NEED SOMEBODY
HELP NOT JUST ANYBODY
HELP YOU KNOW I NEED SOME ONE
HEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEELP
HELP I NEED SOMEBODY
HELP NOT JUST ANYBODY
HELP YOU KNOW I NEED SOME ONE
HEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEELP
12 October 2005
Lazarus.... again... :(
Well well... er orðin veik aftur. Verð að segja að mér finnst það ekki ógurlega gaman. Doksi segir að ég ætti samt að vera orðin góð eftir 2-3 daga, alla vega nógu góð til að fara út og stunda skóla. Er orðin smááááááááááá leið á að gelta og hanga heima alla daga. Úff, fyrir utan að ég hef ekki tíma til þess að vera veik, endalaust vesen... Er samt ekki alveg jafn slöpp og þegar ég fékk barkabólguna þannig að ég ætla að reyna að nota tímann og læra. Definately need to do that... lol þess á milli reyni ég að finna út hvernig ég get sett þessa síðu upp. Verst að ég kann ekkert html mál... ha ha ha ha....
Bið að heilsa að sinni...
Bið að heilsa að sinni...
11 October 2005
wanna get nailed ????
Jæja jæja... þarf að finna mér auka pening og er þar með að fara að af stað að setja up færanlega nagla- og förðunarstúdíó, sem sagt, I come to your house and do your nails and makeup... endilega látið fólk vita ef því langar í ... Ætla að fara að setja upp auglýsingar hér og þar. Það er svona að reyna að lifa af námslánum- not happening. Enda þarf maður að reyna að láta enda ná saman einhvern veginn... ekki auðvelt.
eníhú....
Eins og áður sagði... Ætla á fullt að mála og setja á neglur, ég kem bara í heimahús að setja neglur en það er hægt að semja um hvar ég farða. Endilega komið þessum skilaboðum á framfæri til allra sem vilja heyra og ekki hika við að láta stelpur fá númerið hjá mér ef þær hafa áhuga á nöglum, förðun eða bæði... :D:D:D
l8r

09 October 2005
Ellin að færast yfir.....
Hæ aftur og sorrý að ég hafi ekki bloggað í nokkra daga... letin mig lifandi að drepa... alla vega...
Við vinkonurnar hittumst heima til að taka okkur til fyrir djamm í gær, ég endaði með að mála þær... svaka fjör hjá mér... enduðum með að fara út rúmlega 2. Þegar inn var komið á staðinn blasti við mér argandi og gargandi smáskríll, kvaða af hámark átján ára skrímslum sem voru að drekka sig í hel með töffaraskap. Ekki var hægt að dansa, standa kyrr, tölta um án þess að fá olnboga í rifbein eða bjórslettu á sig, við skulum ekki einu sinni minnast á að mér fannst ég eiga það hættu að vera kýld af engu tilefni.... var eitthvað í vatninu, loftinu eða bjórnum í gær.... ??? Ég sver það... endaði með að fara virkilega pirruð heim um 4. Á þessum tveimur tímum fann ég hvernig ég eldist um möööööööööööööööööööööörg ár.... rassinn seig niður að hnésbótum, brjóstin að mjöðmum, gráu hárin spruttu, hrukkunum fjölgaði ooooooooooooooooooooog dýpkuðu................. úfff... ég er að verða gömul nöldrandi kerling.......... Ekki að nenna að eyða tíma mínum í svona rugl.. Þegar ég fer út vil ég skemmmmmmmmmmmmmmmmta mér, dansa og njóta þess að fá útrás við skemmtilega tónlist... ekki að berjast um tilverurétt minn inni á staðnum....
I'm getting oooooooooooooooooooooooooooold.....
:(

06 October 2005
vkonudagur og Katlan mín....
Jahérna... ætlaði ekki að komast inn... netið eitthvað að bila... Alla vega þegar ég ætlaði að blogga í gær þá tókst mér ekki að komast inn...
enihú...
fór á vkonudag Debenhams í gær... þvílík og önnur eins örtröð, konur réðust hver fyrir aðra að ná í snyrtivörur, föt og hvaðeina sem hugurinn girntist... algerlega gleymt í hvaða tilgangi maður var að koma þarna... nokkuð gott sölutrix hjá Debenhams - hefur örugglega fengið sitthvað út ur þessu kvöldi. Var samt glöð að heyra að Vkonudagssamtökin fékk 1 millu fyrir sig... ekki veitir af að sinna þessu málefni... fannst bara pínu ógnvekjandi að sjá allar kvensurnar í búðaræði. Ég eyddi engu.. fekk að meira að segja gefins rauðann topp :D (gosdrykkinn sko, ekki blússu...)
Fékk annars ekki mjög góðar fréttir af stelpunni minni í gær, doksi finnur ekki út hvað er að henni. Basically á ég að njóta þess að vera með henni núna á meðan hún er ennþá svona hress því um leið og hún verður slappari þá getur verið að hún þurfi að sofna. Ég ekki sátt við það... en auðvitað tek ég þá ákvörðun, það kemur ekki til greina að hún Katla mín þjáist. Vona bara að hún hafi það gott sem lengst svo að ég hafi hana hjá mér.
Ótrúlegt hvað manni getur þótt vænt um dýrin sín. Hjartað mitt brestur við tilhugsunina um að hún gæti farið hvenær sem er... og hún er bara hundur. Ég náttúrulega lít á hana sem litlu stelpuna mín, og hún held ég líka... efast stórlega um að hún fatti að hún er ekki manneskja eins og ég ti hi hi..... En hún er yndisleg... enda besta stelpan í öllum heiminum :D:D:D Ætla að njóta hennar eins og ég get... Gaf henni bein um daginn og hún sýnir það öllum sem vilja sjá (og hinum líka sem vilja ekki sjá) voða montin, nýjasta nýtt er að drepa beinið með margs lags tiktúrum og helst ef að ég hendi því eitthvert.... beinið fer sko með út að pissa og allt.... nýjasti besti vinurinn.... :D:D:D
Hafið það sem allra best og megi kærleikur og birta umvefja ykkur í dag.
KNÚS OG KOSSAR
Alda Lilja

03 October 2005
OH what a beautiful moooooooooooooorning.....
Good morning every one..... Today is a good day :D so much better than this weekend... the good thing about having bad days is that when they are over you realize how wonderful life really is... Woke up at 5.40 and went to the gym... Not going to be able to use my arms tomorrow but hey.... who cares ? It's a beautiful day :D:D:D:D OH what a beautiful moooooooooooooooooooorning, oh what a beautiful daaaaaaaaaaaaaaaayyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyy.... la la la la la lalaaaaaaaaaaaaaaaa laaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa... everything's going my waaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaayyyyyyyyyyyyy....
Lífið er ljúft, það fattar maður þegar maður hefur haft það pínu skítt... það er svo margt sem maður getur verið þakklátur fyrir. Megi birta og gleði skína í lífi ykkar allra.....
Knús og kossar
Lífið er ljúft, það fattar maður þegar maður hefur haft það pínu skítt... það er svo margt sem maður getur verið þakklátur fyrir. Megi birta og gleði skína í lífi ykkar allra.....
Knús og kossar
01 October 2005
Fúl á móti....
Æ voða er eitthvað fúlt í dag. Er svo fúl á móti að ég er komin í heilan hring.... Held að ég hugsi stundum of mikið. Hvers vegna þarf ég alltaf að analísera allt? Er ég betur sett þannig? Æ ég veit ekki, eina sem ég veit að dagurinn í dag er ekki sérlega spennandi. Ætti að reyna að gera eitthvað til þess að létta mér lundina en veistu að ég nenni því ekki... ætli að ég endi ekki með því að horfa á skjá einn frameftir og fara svo að sofa... EEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEN svo á morgun kemir nýr dagur og þá ætti mér að líða betur. Erla vinkona bauð mér í barna afmæli þannig að það getur ekki klikkað :D Þarf að finna líka leið til að peppa þessa síðu upp... setja myndir inn á hana og tengla og eitthvað...... Hvar ætli að ég fatti það ? Ætla að detta inn í help síðuna..... Hlýt að finna það út...... Kannt þú það.....? Endilega láttu mig vita ef þú kannt eitthvað.... takk takk
Subscribe to:
Posts (Atom)